Hagkaup og reykingar.

Hellú,  þannig er mál með vexti að ég fer stundum í Hagkaup í Smáralindinni, ágætis búð og allt það en það sem fer ógurlega í taugarnar á mér er fólkið sem stendur fyrir framan innganginn að Hagkaup og reykir eins og það eigi lífið að leysa.  Mér finnst ákaflega leiðinlegt að þurfa að fara með litlu mörgæsina í gegnum reykingarfýluna.  Er þetta fólk svona illa haldið að það þurfi að reykja um leið og það er komið út.  Ég verð að segja að ég hef ekki orðið vör við þetta í Kringlunni.  Ég hef hugsað mér að senda póst á viðkomandi Hagkaupsverslun og sjá hvað þeir hafa um þetta að segja.

 kv M


Mörgæsapabbi í Danaveldi.

Við sendum þér kveðjur og óskum þér góðs gengis í HogM og kannski Rosendahl, hver veit.

 

Kellan og krílið


Byrja aftur

Jæja pingu ætlar að byrja aftur að blogga.  Vonandi gengur það betur í þetta skipti.

Afhverju þurfa börn að vera svona hávær og ekki nokkur leið að fá þau til að hafa lægra.  Ég er orðinn hálf heyrnarlaus á því að umgangast 21 stykkii af börnum alla virka daga.  Og svo má aldrei gera neitt til að draga úr hávaðanum - kostar of mikið - mörgæs ætti kannski að byðja Ólaf F um að splæsa í hljóðvarnir í leikskólum.. Alla vegana er það ljóst að á þeim launum sem ég fæ í leikskóla er ekki þess virði að missa heyrnina fyrir.

Jæja ætla að fara og tækla litla mörgæsarungann minn. 

 

kv pingu


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband