Kallinn búinn að vera síðan á föstudag á Vatnajökli, borandi holur hér og þar, mæla hitt og þetta og gera við allskonar græjur sem eru á jöklinum. Hefði nú ekki haft neitt á móti því að taka þátt í þessum leiðangri. Það er bara gaman að þeytast um á snjótroðara í snjó.
Eina sem er leiðinlegt við að vera upp á jökli er þegar maður þarf að gera númer 1 og sér í lagi er leiðinlegt að gera númer 2. Strákarnir geta þó veitt slönguna út og látið vaða en við konurnar þurfum alltaf að láta vindana þjóta um afturendann og fleiri staði.
kv m
Bloggar | 25.2.2008 | 23:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mér var sagt að það væri hættulegt að láta streptókokka óáreitta. Því ef þeir komast í blóðrásina þá geta þeir gert heilmikinn skaða. Auðvitað eiga læknar að taka ákvörðun um það hvort eigi að taka strok eða ekki - ekki foreldrarnir.
Ég er samt sammála því að það er ekki þörf á því að taka strok hjá einkennalausum einstaklingum. Bæði maðurinn minn og yngri drengurinn hafa 2 sinnum fengið streptó síðan frá áramótum og í bæði skiptin voru þeir orðnir hundlasnir þegar strokið var tekið. Ekki fór ég samt og lét taka strok því ég var einkennalaus og ég varð ekki lasin.
Svo er annað mál að þjóðfélagið bíður ekki upp á að vera með veik börn. 10 dagar á foreldri í veikindadaga fyrir börn er náttúrulega alveg fáránlega lítið og dugar engan veginn. Á síðasta ári þá kláraði ég þessa daga í janúar og allt árið var eftir. Kannski væri minna um lyfjagjafir ef foreldrar hefðu tíma, getu og velvilja vinnuveitanda til að vera heima meðan börnin væru veik.
kv m
![]() |
Of sterk viðbrögð við streptókokkasýkingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 25.2.2008 | 08:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
![]() |
Lögðu á lokaða Holtavörðuheiði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 10.2.2008 | 21:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ef að það er einhver pest sem mér leiðist að fá þá er það hálsbólga. . Fór á læknavaktina á laugardaginn beið í klukkutíma eftir að komast að. Sagði lækninum að ég væri örugglega með streptó því restin af famelíunni hefði verið með þá og líka að mér væri svona líka fjári illt í hálsinum. En nei kom út með lyfseðil fyrir pensilíni vegna kinnholubólgu og að áðurnefndri bólgu gætu fylgt hálssærindi, fjandinn hafi það að þetta var nú nokkuð meira en særindi. Get svosem ekki kvartað núna Flemoxinið byrjað að virka og hálsbólgan á útleið.
Ekki það að það er ekki mikill háls á mörgæsum.
kv M
Bloggar | 10.2.2008 | 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég á litla mörgæs sem er ný orðinn 3 ára og þvílíkur harðstjóri sem hann getur verið. Ef maður gæti nú verið eins og hann. Grenjað ef maður fær ekki ís, vilja ekki fara að sofa þótt maður sé orðinn úrvinda af þreytu og geðvonsku. Ég sé líka fram á það að hann verði með bleyju á fermingardaginn því ekki hefur snefil af áhuga að nota salernið. Ég er á SOS námskeiði til að læra að tækla svona gaur sem er ótrúlegt því ég er leikskólakennari og á ekki í basli með að hafa stjórn á 21 barni í einu. Á því námskeiði vorum við að ræða afhverju við værum þarna og einn pabbinn sagði. Ja ég er nú hér vegna þess að stundum virðist krakkinn hreinlega vera andsetinn. Og svei mér þá ef þetta er ekki rétt. Stundum finnst mér eins og það skjótist upp og út horn og hali á blessað barnið.
kv M
Dægurmál | 9.2.2008 | 19:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
koma nú í slaginn og taka eitthvað af þeim hundruðum útkalla sem eru búin að koma og eiga eftir að koma.
Hvar er þetta fólk ?
![]() |
150 útköll vegna óveðursins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 8.2.2008 | 21:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Jæja, - hvar eru nú allir einkaaðilarnir sem voru að selja flugelda og stela bissness frá björgunarsveitunum.
Er ekki bara málið að hringja í Gullborg og Einar áttavilta, eða jú Örn Árna, - og fá landkrúserana lánaða hjá þeim. - Ekki er víst að þeir sjálfir séu tilbúnir að fara frá föstudagssteikinni sinni til að bjarga föstu fólki eða binda niður fjúkandi þakplötur, - það minnsta sem þeir gætu gert er að lána bílana sína...
eða hvað, - - Það er í raun ekki mikil pæling hjá þeissum aðilum að vera til gagns í þjóðfélaginu, - svo ég held að þið sem eruð í vanda þurfið enn og aftur að stóla á okkar góðu björgunarsveitir til að redda málunum..
kv.
M
![]() |
Beiðnir um aðstoð farnar að berast björgunarsveitum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 8.2.2008 | 16:49 (breytt kl. 16:49) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ef það er lokað þá er lokað og nema þér sé það því nauðsynlegra að komast yfir reyndu þá að fá Lögreglu eða björgunarsveit til að aka þér. Það er allt of mikið af ökumönnum sem taka sénsinn með eigin lífi og leiðinni lífi annarra. Þannig að ef það er lokað þá er bara lokað. Það er ekki verið að loka þessum leiðum bara afþví að heldur af vel ígrunduðu máli.
kv M
![]() |
Ætla yfir þrátt fyrir lokun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 7.2.2008 | 23:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
það er kannski eins gott að það fari að rigna því fólk virðist vera búið að gleyma hvernig á að keyra í snjó og hálku. Á svona stundum finnst mér jafnvel eins og frumskógarlögmálið ráði í umferðinni en ekki umferðarlög.
![]() |
Ófærð varla meiri frá árinu 2000 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 7.2.2008 | 15:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrst þeir á annað borð eru að endursýna Vini, afhverju er þá ekki hægt að sýna seríuna í réttri röð ? Sama með Simpsons, það eru til óteljandi Simpsons þættir en Stöð 2 er samt alltaf að sýna sömu þættina með ákveðnu millibili. Svo borgar maður formúgu fyrir áskriftina. Það er þá lágmark að vera ekki með endalausar endursýningar.
Svo er það Kaupþing. Bara það að sjá auglýsingarnar með John Cleese kemur mér í vont skap. Þetta hlýtur að hafa verið rándýrt að gera þær og svo þegar á bætist að bankastjórinn fær tugi milljóna í laun. Ég meina það er bara verið að gefa skít í almenning og sér í lagi viðskiptavini Kaupþings. Svo eru íslendingar með met í yfirdrátti sem er með glæpsamlega háum vöxtum, nota bene þeir eru reynar háir í öllum bönkunum. En samt hvernig væri að minnka auglýsingakostnað og laun stjórnenda og lækka vexti og þjónustugjöld í leiðinni.
Kv M
Bloggar | 4.2.2008 | 20:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Heimasíður
Skemmtilegar heimasíður
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar