Hagkaup og reykingar.

Hellú,  þannig er mál með vexti að ég fer stundum í Hagkaup í Smáralindinni, ágætis búð og allt það en það sem fer ógurlega í taugarnar á mér er fólkið sem stendur fyrir framan innganginn að Hagkaup og reykir eins og það eigi lífið að leysa.  Mér finnst ákaflega leiðinlegt að þurfa að fara með litlu mörgæsina í gegnum reykingarfýluna.  Er þetta fólk svona illa haldið að það þurfi að reykja um leið og það er komið út.  Ég verð að segja að ég hef ekki orðið vör við þetta í Kringlunni.  Ég hef hugsað mér að senda póst á viðkomandi Hagkaupsverslun og sjá hvað þeir hafa um þetta að segja.

 kv M


Bloggfærslur 30. janúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband