Er fólk fífl.

Er að pæla í þessu.  Svo eru björgunarsveitirnar sendar til að bjarga.    Eitt að fólkið setji sig sjálft í hættu en þegar búið er að loka veginum og það fer samt þá finnst mér það mjög alvarlegt mál þá er það farið að setja fleiri saklausa borgara í hættu.  Ég vona að það séu einhver viðurlög við svona fíflaskap.
mbl.is Lögðu á lokaða Holtavörðuheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hálsbólga!!!!!

Ef að það er einhver pest sem mér leiðist að fá þá er það hálsbólga. .  Fór á læknavaktina á laugardaginn beið í klukkutíma eftir að komast að.  Sagði lækninum að ég væri örugglega með streptó því restin af famelíunni hefði verið með þá og líka að mér væri svona líka fjári illt í hálsinum.  En nei kom út með lyfseðil fyrir pensilíni vegna kinnholubólgu og að áðurnefndri bólgu gætu fylgt hálssærindi, fjandinn hafi það að þetta var nú nokkuð meira en særindi.  Get svosem ekki kvartað núna Flemoxinið byrjað að virka og hálsbólgan á útleið.

 

Ekki það að það er ekki mikill háls á mörgæsum.

 

kv M


Bloggfærslur 10. febrúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband