Mörgæs í sundi.

Núg núg.  Mörgæsin heilsar.  Í dag fór ég í sundleikfimi, eitthvað sem ég hef aldrei prófað fyrr.  Svei mér þá ef þetta var ekki bara alveg ágætt.  Ég þarf bara að hætta að horfa á það sem flýtur í lauginni og þá er þetta í lagi, ég er nefnilega svo ægilega klígjugjörn og fer aldrei í sund venjulega.  Svo fór ég í göngu og er ég að hugsa um að uppfæra mig í lengri göngu á morgun. Annars er þetta ósköp rólegt hérna.  Ég held bara áfram að lesa húsmæðraklámið.  Synd er samt að segja að það séu álitlegir karlmenn hérna.  Kannski er ég ekki búin að leita nóg en þessa tvo daga hef ég ekki séð neinn.

Núgg Núgg.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott að þú er farin að synda heillin,

en mundu að ég var búinn að taka fyrir alla samdrætti með starfsfólki eða sjúklingum, - þú verður að bíða eftir að komast heim ef þú villt fá eitthvað...

Mörgæsapabbi (IP-tala skráð) 15.5.2007 kl. 21:47

2 identicon

Býð spennt eftir að komast undir bægsin hjá þér mörgæsapabbi

Mörgæsin (IP-tala skráð) 15.5.2007 kl. 21:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband